Eigendur kjarnorkuversins í Fukushima í Japan hafa beðið Niantic, framleiðendur Pokémon Go, um að fjarlægja alla Pokémona af hættusvæðinu í kringum orkuverið. Enn hefur enginn þjálfari reynt að komast inn á svæðið, en einhverjir Pokémon karlar hafa fundist á svæðinu.
Yfirvöld í Japan hafa beðið eigendur kjarnorkuvera að auka gæslu eftir að þrír táningar laumuðust inn í kjarnorkuver í Bandaríkjunum. Þá hefur TEPCO, eigandi Daiichi kjarnorkuversins , bannað starfsmönnum sínum að spila Pokémon Go á svæðinu.
Ríkisstjóri héraðsins sagði ekki gott ef fólk myndi reyna að nálgast þessa karla á svæðinu. Geislavirkni er á svæðinu eftir að flóðbylgja vegna jarðskjálfta olli verulegum skemmdum á kjarnorkuverinu. Þrisvar sinnum kom til bráðnunar í kjarnakljúfum versins og þurfti að flytja þurfti um 160 þúsund manns af svæðinu.
Sjá einnig: Fimm ár frá hamförunum í Japan
Leikurinn hefur valdið töluverðum fjölda slysa og hafa fjöldinn allur af leikmönnum komið sér í hættulegar aðstæður.
Vilja ekki Pokémon þjálfara á geislavirkt svæði

Tengdar fréttir

Klerkar í Sádi-Arabíu setja bann gegn Pokémonum
Þrír Sádi-Arabar voru handteknir á götum úti í gær fyrir að spila leikinn Pokémon Go.

Pokémonþjálfari keyrði á kyrrstæðan löggubíl
Ökumaður í Baltimore var með nefið á kafi í símanum á röngu augnabliki.

Kraftajötunn hellir úr skálum reiði sinnar vegna Pokémon-fíknar
Kraftakarlinn Robert Frank er ekki beint sáttur við þá sem spila Pokémon Go leikinn í snjallsímum sínum.

Attenborough lýsir Pokémon Go - Myndband
Breski sjónvarpsmaðurinn Sir David Attenborough er með rödd sem allir þekkja en dýralífsþáttaþulur og er heimsþekktur.

Pokémon-þjálfari stóð út á götu og stöðvaði alla umferð: Sturlaðist þegar ökumaðurinn flautaði
Pokémon GO, snjallsímaleikurinn ógnarvinsæli, er að gera allt vitlaust í heiminum og virðist fólk ekki geta hætt að spila.