Lífið

Stjarna úr One Direction stödd á Íslandi

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Félagarnir Harry, Liam, Niall og Louis.
Félagarnir Harry, Liam, Niall og Louis. Vísir/Getty
Liam Payne, einn af söngvurunum úr strákabandinu vinsæla One Direction, er mættur til Íslands. Samkvæmt heimildum Vísis skellti Liam sér út að borða á Grillmarkaðnum í miðbæ Reykjavíkur í gærkvöldi.

Ekki fylgir sögunni hvort kærasta Liam, söngkonan Cheryl, sé með í för eða í hvaða erindagjörðum Payne sé á landinu. Óhætt er að segja að heimsókn kappans muni vekja athygli en One Direction var ein vinsælasta sveit heims þegar stjarna þeirra skein sem skærast.

Liam Payne er, líkt og fyrr segir, meðlimur strákabandsins One Direction en þeir komu fyrst fram á sjónarsviðið í breska sjónvarpsþættinum X-Factor árið 2010 þar sem þeir voru í þriðja sæti. Síðan þá hafa þeir gert garðinn frægan og gefið út fimm plötur. Hljómsveitin tók sér pásu í janúar á þessu ári og búist er við að þeir komi aftur saman á næsta ári. 

Meðlimir sveitarinnar hafa haft ýmislegt á sinni könnu síðan pásan hófst, en Harry Styles lauk nýlega tökum á nýrri mynd Christopher Nolan þar sem hann fer með hlutverk. Þá eignaðist Louis Tomlinson eignaðist son þann 21. janúar síðastliðinn og Niall Horan fór í heimsreisu.

Uppi eru orðrómar um að Liam Payne stefni á sóló feril líkt og Zayn Malik, sem yfirgaf sveitina í mars á síðasta ári.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×