Þetta var ekki bara sögulegur sigur af því að þetta varð 22. gullverðlaun Michael Phelps á Ólympíuleikum. Hann var nefnilega að vinna 200 metra fjórsundið á fjórðu leikunum í röð.
Hinn 31 árs gamli Michael Phelps sýndi mikla yfirburði í úrslitasundinu en hann vann það með næstum því tveggja sekúndna mun. Kosuke Hagino frá Japan fékk silfur og Shun Wang frá Kína brons.
Michael Phelps hefur nú unnið fern gullverðlaun á þessum leikum í Ríó en tvenn þeirra hafa komið í boðsundum. Hann vann síðan 200 metra flugsundið.
Michael Phelps hefur nú unnið miklu meira en tvöfalt fleiri gullverðlaun á Ólympíuleikum en þau Larisa Latynina, Paavo Nurmi, Mark Spitz og Carl Lewis sem koma öll í öðru sætinu með níu gull hvert.
Michael Phelps hætti eftir Ólympíuleikana í London 2012 en byrjaði aftur og hefur bætt við þetta ótrúlega met sitt.
Michael Phelps á alls 26 verðlaun á Ólympíuleikum því hann á einnig tvö silfur og tvö brons.
Michael Phelps vann sex gull í Aþenu 2004, átta gull í Peking 2008, fjögur gull í London og nú eru komin fjögur gull í Ríó.
