Bílar

MAX1 Bílavaktin og Bleika slaufan í þriðja sinn

Finnur Thorlacius skrifar
Starfsmenn MAX1 Bílavaktarinnar og Krabbameinsfélags Íslands innsigla hér samstarfið.
Starfsmenn MAX1 Bílavaktarinnar og Krabbameinsfélags Íslands innsigla hér samstarfið.
MAX1 Bílavaktin, sem er söluaðili Nokian tires á Íslandi, mun nú í þriðja sinn ganga til samstarfs við Bleiku slaufuna. Í október og nóvember mun hluti ágóða af sölu Nokian dekkja renna til átaksins. Á meðan samstarfinu stendur mun MAX1 jafnframt bjóða viðskiptavinum 20% afslátt af Nokian dekkjum.

Bleika slaufan er í senn árvekni- og fjáröflunarátak sem er nú haldið í tíunda sinn. Í ár verður lögð áhersla á brjóstakrabbamein og safnað verður fyrir endurnýjun á tækjabúnaði fyrir brjóstakrabbameinsleit.

MAX1 og Bleika slaufan hafa átt farsælt samstarf og því var enginn vafi á að endurtaka samstarfið nú í ár. „Viðskiptavinir sem og starfsmenn okkar hafa tekið þessu samstarfi rosalega vel enda frábært málefni. Nokian í Finnlandi hefur kynnt samstarfið fyrir sínum markaðssvæðum og vonandi sjáum við samskonar samstarf um alla Evrópu á næstu misserum.

Það er sönn ánægja að fá að taka þátt í að vekja athygli á eins þörfu málefni og krabbamein er“ segir Sigurjón Árni Ólafsson, framkvæmdastjóri MAX1 Bílavaktarinnar. Samstarfið hefst 1. október og verður út nóvember mánuð. Að sjálfsögðu verður Bleika slaufan til sölu á öllum verkstæðum MAX1 en þau eru fjögur talsins, þrjú í Reykjavík og eitt í Hafnarfirði.

20% afsláttur af Nokian gæðadekkjum

Viðskiptavinir MAX1 sem versla dekk í október og nóvember leggja ekki einungis góðu málefni lið heldur fá einnig 20% afslátt af Nokian dekkjum.

Dekk eru af ólíkum gæðum

Nokian dekk koma frá Finnlandi og eru ein öruggustu dekk sem völ er á eins og kannanir hafa sýnt fram á. Nokian er hefur sérhæft sig í framleiðslu dekkja fyrir þær aksturs aðstæður sem finnast hér á Íslandi. „Við höfum reynt að efla fræðslu um öryggi í umferðinni. Það kemur mörgum á óvart að heyra að mismunur á hemlunarvegalengd tveggja nýrra dekkja á 100 km hraða getur verið allt að 27 metrar. Þessi vegalengd getur skipt sköpum.

Við bjóðum upp á dekk í öllum verðflokkum en við ráðleggjum fólki að velja gæðadekk því öryggi bílsins veltur mikið á gæðum dekkjanna“ segir Sigurjón Árni. „Við veitum fólki ráðgjöf um hvernig dekk séu best undir bílinn og erum einnig með góða heimasíðu sem er með miklum upplýsingum um ólík dekk.






×