Þegar auglýst var kökukeppni í félagsmiðstöðinni í Hlíðaskóla lögðu þær Heiðrún, Svanhildur Dóra, Svanhildur Margrét og Valgerður Birna á ráðin, bökuðu og hönnuðu. Afraksturinn var skemmtileg og skrýtin kaka sem var líka mjög góð á bragðið. En hvernig kaka?
SD: Þetta er kaka með hálfpartinn tveimur hausum, tvíburakaka.
H: Á botninum er marens, svo súkkulaðikrem og rjómi með bláum matarlit og ávöxtum. Þar ofan á eru svampbotnar sem líta út eins og smábörn sem eru græn og appelsínugul á litinn.
V: Svo tókum við piparkökuform og tókum út úr kökunum og svissuðum litum svo það var komin græn stjarna í appelsínugula svampbotninn og appelsínugul í þann græna.
H: Og svo settum við fullt af gúmmíi og nammi og kökuskrauti og piparkökum frá síðustu jólum á hliðarnar.
SM: Og þá var komin marenskaka með smábarnaandlitum!
Hvernig gekk að vera fjórar saman að baka?
SD: Það gekk bara vel. Ég þeytti rjóma og skreytti.
H: Það var æðislegt. Mér finnst gaman að baka með vinum mínum. Og mér er alveg sama hvort við vinnum eða ekki.
V: Það gekk frekar vel. Við vorum ekki alltaf sammála í byrjun en svo komumst við að niðurstöðu með lýðræði.
Hvað eruð þið búnar að vera vinkonur lengi?
SM: Mjög lengi. Við Heiðrún vorum saman í leikskóla og Valgerður B. og Svanhildur D. líka. Við hittumst allar í 1. bekk í Hlíðaskóla, en urðum samt ekki alveg strax vinkonur.
Ætlið þið að verða bakarar þegar þið verðið stórar?
H og SM: Ég veit ekki.
V: Maður veit aldrei??
Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 1. október 2016.

