Lífið

Skráningu í Jóla­stjörnuna lýkur í kvöld

Tinni Sveinsson skrifar
Jólastjarnan 2015 er hér í fullum skrúða á stóra sviðinu á Jólagestum í fyrra.
Jólastjarnan 2015 er hér í fullum skrúða á stóra sviðinu á Jólagestum í fyrra.
Skráningu í Jólastjörnuna 2016 lýkur í kvöld á miðnætti. Í ár er Jólastjarnan haldin í sjötta skiptið en hér fá 16 ára og yngri söngsnillingar tækifæri á að syngja á stórtónleikunum Jólagestir Björgvins. 

Til að taka þátt skulu þátttakendur senda myndband af sér að syngja á skráningarsíðu Jólastjörnunnar á Vísi. Þátttakendur syngja lag að eigin vali, með sínu nefi og senda hlekk á myndbandsupptöku af söngnum á skráningarsíðu Vísis.

Dómnefnd skipa Jóhanna Guðrún, Gissur Páll og Björgvin Halldórsson.
12 bestu söngvararnir að mati dómnefndar verða boðaðir í prufur og eftir þær mun sigurvegarinn koma í ljós. Stöð 2 gerir sérstaka þáttaröð um allt ferlið og verða þrír þættir sýndir í seinni hluta nóvember. Í fyrstu tveimur koma keppendurnir tólf í prufur og í þeim þriðja er sigurvegarinn afhjúpaður.

Sigurvegarinn mun syngja með Jólagestum Björgvins, 10. desember í Laugardalshöllinni. 

Hálfdán Helgi Matthíasson bar sigur úr býtum í Jólastjörnunni 2015 en hann var valin úr hópi um tvö hundruð barna sem sóttu um með því að senda myndbönd inn á Vísi. Hér fyrir neðan má sjá upptöku af aðalnúmeri Hálfdáns á tónleikunum í fyrra en önnur börn sem valin voru til þátttöku í keppninni komu þar einnig fram.

Hægt er að sjá nánari upplýsingar og skrá sig til leiks á visir.is/jolastjarnan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.