Lífið

Var Sarah Jessica Parker að tilkynna að þriðja Sex and the City myndin sé á leiðinni?

Stefán Árni Pálsson skrifar
Stórar fréttir.
Stórar fréttir.
Leikkonan Sarah Jessica Parker talaði eins og það væri nokkuð líklegt að þriðja Sex and the City væri á leiðinni í viðtali við Jane Pauley í þættinum Sunday Morning á CBS í gær.

„Það er ekkert klárt í þeim málum en ég get sagt að það er einhver þarna úti sem er að halda fast í þá hugmynd,“ segir Parker en fyrsta myndin kom út árið 2008 og í kjölfarið kom út önnur mynd árið 2010.

Þættirnir voru á dagskrá HBO á árunum 1998-2004 og nutu gríðarlegrar vinsælda. Erlendir miðlar hafa í dag fjallað mikið um orð Parker og vilja margir þeirra meina að þriðja myndin sé á teikniborðinu.

Hér að neðan má sjá viðtalið við Parker en hún talaði einnig um nýjasta þátt sinn, Divorce, sem er á dagskrá Stöðvar 2.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.