Lífið

Össur át á sig gat og Eva fræddi börn um aflandsfélög

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Það eru ekki nema 12 dagar til kosninga og flokkarnir eru á yfirsnúningi við að reyna að afla sér og stefnu sinni fylgi. Samfylkingin fór ekki varhluta af því á föstudaginn eins og fylgjendur stod2frettir á Snapchat fengu að kynnast.

Þau Eva Baldursdóttir og Össur Skarphéðinsson leyfðu áhorfendum að skyggnast á bakvið tjöldin í baráttunni en föstudagurinn þeirra einkenndist af Kjallaraborgunum, fjölmiðlaáreiti og grunlausum Kringlurottum.

Ævintýri Samfylkingarinnar má sjá í spilaranum hér að ofan.

Á næstu dögum og vikum munu fulltrúar annarra flokka sjá um snappið og til þess að fylgjast með því sem á daga þeirra drífur þarf einfaldlega að bæta við stod2frettir á Snapchat. Þá getur fólk einnig bætt reikningunum við með því að kveikja á Snapchat og beina myndavélinni að gula merkinu hér að neðan.

Flokkunum hefur öllum verið boðið að nýta sér aðgang fréttastofunnar. Með því að kveikja á Snapchat og beina myndavélinni að gula reitnum geturðu bætt við Kvöldfréttum Stöðvar 2 með einföldum hætti.

Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.