Suður-kóreski tæknirisinn Samsung hefur ákveðið að stöðva tímabundið framleiðslu á Galaxy Note 7 símum fyrirtækisins eftir að tilkynningar bárust um að eldur hafi komið upp í nýrri tegund af símunum sem fólk gat skipt út fyrir eldri útgáfu sem einnig var gölluð.
Ákvörðunin er tekin í samstarfi við kínversk og bandarísk yfirvöld.
BBC hefur eftir talsmanni Samsung að til standi að lagfæra framleiðsluna til að tryggja gæði og öryggi símanna.
Fjölmargar ábendingar bárust í síðasta mánuði um bilanir í rafhlöðum Galaxy Note 7 símanna. Voru þeir í kjölfarið innkallaðir og gátu viðskiptavinir nálgast endurbætta útgáfu. Nú hafa hins vegar fréttir borist um að reyk hafi lagt frá nýju símunum.
Virði hlutabréfa Samsung hafa fallið í morgun.
Samsung stöðvar framleiðslu á Galaxy Note 7

Tengdar fréttir

Sex ára drengur slasaðist eftir að Samsung Galaxy Note 7 sprakk
Vandræði Samsung vegna símans fara vaxandi.

Enn kviknar í Galaxy Note 7 þrátt fyrir endurbætur
Eitt atvikanna átti sér stað í flugvél Southwest Airlines á miðvikudaginn.

Klúður Samsung er himnasending Apple
Innköllun 2,5 milljóna snjallsíma Samsung kemur á besta tíma fyrir helsta keppinaut þeirra.

Samsung skipað að tryggja öryggi battería sinna
Samung hefur orðið fyrir miklum skakkaföllum vegna Samsung Galaxy Note 7 símans.

Fleiri vörur Samsung virðast springa
Fyrirtækið er til rannsóknar í Bandaríkjunum vegna vandræða með þvottavélar þeirra.

Samsung Galaxy Note 7 gereyðilagði jeppa
Var í hleðslu inní bílnum og brann ásamt bílnum.