Lífið

Conan og Ryan Reynolds í fáránlega löngum og heitum sleik í Notebook 2

Stefán Árni Pálsson skrifar
Fallegt atriði
Fallegt atriði
Ryan Reynolds var gestur í þætti Conon O'Brien á TBS á dögunum og fór hann gjörsamlega á kostum.

Hann var mættur í þáttinn til að kynna nýjustu mynd sína, The Notebook 2, en Conan sjálfur leikur á móti honum í myndinni.

Rómantíska myndin Notebook kom út árið 2004 og var hún með þeim Ryan Gosling og Rachel McAdams í aðalhlutverkum.

Myndin hefur verið talin einhver allra rómantískasta mynd allra tíma undanfarin áratug og ætlar greinilega Reynolds að feta í fótspor Ryan Gosling.

Hér að neðan má sjá „stiklu“ úr Notebook 2 en þar hitnar heldur betur í kolunum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×