Innlent

Skjálftahrina í Bárðarbungu

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Bárðarbunga.
Bárðarbunga. Vísir
Klukkan 04:51 í nótt hófst skjálftahrina í norðanverðri Bárðarbunguöskju. Skjálftar mældust 4 stig og stóð hrinan í 40 mínútur.

Tugur eftirskjálfta fylgdi í kjölfar hrinunnar, þar af nokkrir yfir þremur stigum. Enginn gosórói er sjáanlegur í kjölfar skjálftanna og frá því um klukkan sex hefur verið rólegt á svæðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×