Innlent

Ekki til nýjar Tetra- talstöðvar fyrir alla

Þorgeir Helgason skrifar
Slökkviliðsstjórinn á höfuðborgarsvæðinu segir Tetra-samskiptakerfið lífsnauðsynlegt við störf slökkviðliðsins.
Slökkviliðsstjórinn á höfuðborgarsvæðinu segir Tetra-samskiptakerfið lífsnauðsynlegt við störf slökkviðliðsins. vísir/vilhelm
Viðkvæmar upplýsingar sem mikilvægustu viðbragðsaðilar landsins hafa tjáð sig um í gegnum Tetra-samskiptakerfið hafa verið aðgengilegar á vefsvæði mánuðum saman. Lögregluna hefur grunað í tvö ár að einhver hafi hakkað sig inn á kerfið en aðhafðist ekki fyrr en á miðvikudag. Meðal upplýsinga sem leynast á síðunni eru samskipti lögreglunnar um líkamsárás, sem átti sér stað í heimahúsi á Höfn í Hornafirði í fyrrakvöld.

„Við dulkóðuðum okkar samskipti á hádegi á miðvikudag. Við hefðum getað dulkóðað í vor ef við værum ekki í samvinnu við ýmsa samstarfsaðila,“ segir Ásgeir Þór Ásgeirsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Dulkóðun á samskiptum lögreglunnar lauk í gærkvöldi en aðrir hafa þurft að bíða eftir uppfærslunni. Skipta þarf út gömlum talstöðvum fyrir nýjar.

Tetra-samskiptakerfið er í eigu íslenska ríkisins og rekið af Neyðar­línunni. Öll embætti lögreglu, slökkvilið landsins, sjúkraflutningamenn, björgunarsveitir, Strætó bs., orkufyrirtæki og bílstjórar ráðherra og forseta Íslands reiða sig á kerfið.

Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðsstjóri á höfuðborgarsvæðinu.vísir/stefán
„Þetta kom eins og köld gusa framan í okkur. Strax og við fréttum af þessu breyttum við öllum samskiptavenjum okkar, þannig að persónulegar upplýsingar eins og kennitölur, nöfn, heimilisföng, sjúkdómseinkenni og annað fer ekki í gegnum Tetra-kerfið. Eins og er notum við GSM-síma til að miðla þessum upplýsingum,“ segir Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðsstjóri höfuðborgarsvæðisins. Hann segir að ekki hafi verið hægt að leggja kerfið til hliðar vegna þess að það er lífsnauðsynlegt við störf slökkviliðsins og sjúkraflutningamanna.

Það sem að liggur fyrir er að við þurfum að endurnýja okkar búnað og við gerum það í samstarfi við Neyðarlínuna. Við þurfum að bíða eftir talstöðvum sem verið er að senda frá Berlín, enda átti Neyðarlínan ekki til lager af þeim,“ segir Jón Viðar.

Jóhannes Svavar Rúnarsson, framkvæmdastjóri Strætó, segir að verið sé að skoða hvort uppfæra þurfi kerfið en ekki liggi fyrir endanleg ákvörðun um það. „Við höfum ekki haft stórkostlegar áhyggjur af þessu af því að samskipti okkar eru ekki leynileg. Þau eru aðallega um hvar strætisvagninn er staddur,“ segir Jóhannes.

Landspítalinn lagði niður kerfið á miðvikudag og hefur síðan þá notað GSM-síma við samskipti innanhúss. Þá hefur Landsvirkjun ákveðið að endurnýja allar Tetra-talstöðvar sínar. 

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu




Fleiri fréttir

Sjá meira


×