Innlent

Ofbeldismál að buga starfsfólk

Þorgeir Helgason skrifar
Heimilisofbeldi reyndist meira en áætlað var í Kópavogi.
Heimilisofbeldi reyndist meira en áætlað var í Kópavogi. Vísir/Teitur
„Verkefnið hefur gengið ofsalega vel en það er gríðarlega mikið álag á starfsfólki barnaverndar,“ segir Kolbrún Þorkelsdóttir, formaður barnaverndarnefndar Kópavogsbæjar, um átak gegn heimilisofbeldi.

Bæjarstjóri Kópavogs, Ármann Kr. Ólafsson, og Sigríður Björk Guðjónsdóttir, lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu, undirrituðu í fyrravor samstarfsyfirlýsingu um tilraunaverkefni til eins árs á sviði barnaverndar.

Í bréfi til barnaverndarnefndar frá ofbeldisteymi og deildarstjóra barnaverndar segir að starfsfólk barnaverndar hafi lagt sig fram við að sinna málaflokknum vel og veita öfluga og faglega aðkomu. Hins vegar sé ljóst að deildin geti ekki sinnt þessari vinnu áfram með þann fjölda starfsmanna sem heimild er fyrir í deildinni.

Barnavernd Kópavogs hafði afskipti af 71 fjölskyldu eða 118 börnum sem upplifðu heimilisofbeldi á tímabilinu 1. júlí 2015 til 30. júní 2016. Fjöldinn er mun meiri en gert var ráð fyrir í upphafi og vinnsla hvers máls reyndist viðameiri.

Þessi fjöldi heimilisofbeldismála hefur bæst við almenn störf starfsmanna barnaverndar í Kópavogi. „Það segir sig alveg sjálft að starfsmenn geta ekki endalaust haldið svona mörgum boltum á lofti. Þetta mun á endanum koma niður á starfinu,“ segir Kolbrún.

Á fundi barnaverndarnefndar Kópavogs í gær var bókað að til að unnt væri að halda áfram þessu nauðsynlega starfi þyrfti að koma til aukinn stuðningur. Nefndin sé mjög meðvituð um mikilvægi verkefnisins og leggur mikla áherslu á að því sé framhaldið.

„Það sem er svo jákvætt við þetta verkefni er að það er að nást árangur. Það er svo mikilvægt að málum eins og þessum sé fylgt vel eftir,“ segir Kolbrún. Hún segir að það væri mikið ábyrgðarleysi að hætta þessu verkefni.

Þegar Fréttablaðið leitaði svara hjá Ármanni Kr. Ólafssyni, bæjarstjóra Kópavogsbæjar, um næstu skref bæjarins sagðist hann mundu funda með sviðsstjóra velferðarsviðs og fara yfir forgangsröðina á sviðinu hans.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.

vísir/anton



Fleiri fréttir

Sjá meira


×