Innlent

Einungis lítill hluti barna fær leikskólavist

Sveinn Arnarsson skrifar
Foreldrar á Akureyri standa ráðalausir og launalausir heima því að ekki er pláss hjá dagforeldrum. Formaður bæjarráðs segir skorta fjármagn.
Foreldrar á Akureyri standa ráðalausir og launalausir heima því að ekki er pláss hjá dagforeldrum. Formaður bæjarráðs segir skorta fjármagn. Vísir/Auðunn
Börn á Akureyri fædd í apríl árið 2015 gætu fengið leikskólapláss í ágúst á næsta ári, þá rúmlega tveggja ára gömul. Fullt er hjá öllum dagforeldrum bæjarins og foreldrar standa því ráðalausir og launalausir heima við og komast ekki til vinnu þegar fæðingarorlofi lýkur.

Akureyrarbær skuldbindur sig til þess að taka öll börn inn á leikskóla á öðru ári þeirra. Ljóst er samkvæmt þessu að bærinn stendur ekki við skuldbindingar sínar gagnvart íbúum bæjarins. „Þetta er vandi sem kemur í sveiflum. Við höfum verið að skoða þetta innan bæjarkerfisins. Við sjáum vandann og við þurfum að vega og meta hvað sé best að gera til að mæta þörfum íbúa,“ segir Guðmundur Baldvin Guðmundsson, formaður bæjarráðs Akureyrar.

Guðmundur Baldvin Guðmundsson, formaður bæjarráðs Akureyrar
Samkvæmt upplýsingum frá Akureyrarbæ var öllum börnum sem fædd eru frá janúar til mars árið 2015 boðið pláss á leikskóla nú í haust. Þau börn sem fædd eru síðar komast ekki á leikskóla fyrr en haustið 2017 nema að pláss losni af öðrum ástæðum fyrr. Mikil óánægja er meðal foreldra sem aðeins fá níu mánaða fæðingarorlof, að annað foreldrið þurfi að vera heima við í langan tíma launalaust á meðan beðið er eftir plássi.

Guðmundur Baldvin segir leikskólaplássið ekki vera sprungið. „Plássið er til staðar. Þetta er hins vegar spurning um fjármagnið sem veitt er í málaflokkinn. En það eru sveiflur í þessu og við þurfum að vega og meta hvað er best að gera í stöðunni.“

Þórunn Anna Elíasdóttir, íbúi á Akureyri.
Þórunn Anna Elíasdóttir, móðir barns sem fætt er 2015, segir stöðuna óásættanlega. „Þessa stöðu er ekki hægt að sætta sig við til lengdar. Ég hef óskað eftir fundi með formanni bæjarráðs og bæjarstjóra vegna málsins. Margir foreldrar eru áhyggjufullir þar sem þetta gæti haft mikil neikvæð áhrif á heimilisbókhaldið hjá mörgum fjölskyldum,“ segir Þórunn Anna.

Miklar breytingar eru áformaðar í leikskólamálum á Akureyri á næstu misserum. Loka á tveimur rótgrónum leikskólum í bænum og stendur til að byggja nýjan leikskóla við Glerárskóla norðarlega í bænum. 

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu




Fleiri fréttir

Sjá meira


×