Innlent

Veginum sunnan Vatnajökuls lokað vegna óveðurs

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Vindhviður hafa verið að mælast í kringum 30 m/s.
Vindhviður hafa verið að mælast í kringum 30 m/s. mynd/vegagerðin
Lögreglan á Suðurlandi hefur ákveðið að loka veginum sunnan Vatnajökuls vegna óveðurs. Gera má ráð fyrir að lokunin vari eitthvað fram eftir, þar sem búist er við vaxandi hvassviðri fram eftir kvöldi.

Vindhviður hafa verið að mælast í kringum 30 metra á sekúndu í dag og varaði lögreglan vegfarendur í dag við óþarfa ferðalögum í kringum Öræfasveit. Er fólki bent á að fylgjast með upplýsingum um veður og færð á vefsíðu Vegagerðarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×