Innlent

Rafmagnstruflanir í Skagafirði

Gissur Sigurðsson skrifar
Rafmagnstruflanir voru í Skagafirði
Rafmagnstruflanir voru í Skagafirði vísir/loftmyndir
Töluverðar rafmagnstruflanir urðu víða í Skagafirði í gærkvöldi og fram á nótt, en frá því klukkan fjögur í nótt hefur rafmagn alls staðar haldist inni. Rafmagn fór þó aldrei af Sauðárkróki.

Að sögn bilunarvaktar RARIK er ekki vitað hvað olli þessu því ísing hlóðst ekki á línurnar. Hins vegar sáust af og til mjög skærir blossar frá línunum og er talið að samsláttur þeirra hafi valdið þeim og svo rafmagnstruflunum í kjölfarið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×