Innlent

Fyrstu hálkuslys vetrarins í gær

Þorgeir Helgason skrifar
Guðný Helga Herbertsdóttir, deildarstjóri samskiptadeildar Landspítalans.
Guðný Helga Herbertsdóttir, deildarstjóri samskiptadeildar Landspítalans. vísir/gva
„Við vorum að sjá í dag fyrstu hálkuslys vetrarins,“ sagði Guðný Helga Herbertsdóttir, deildarstjóri samskiptadeildar Landspítalans, í samtali við Fréttablaðið í gær. Enginn slasaði sig þó alvarlega.

Varasöm ísing myndaðist á göngu- og hjólastígum á höfuðborgarsvæðinu í gær. Búast má við að það verði hált eitthvað áfram en hitastig verður við frostmark næstu daga.

Fólk er beðið um að fara var­lega í umferðinni, gang­andi, akandi og hjólandi, en hálka leynist víða. 

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu




Fleiri fréttir

Sjá meira


×