Innlent

Upplýsa pólska innflytjendur um lungnakrabbamein

Svavar Hávarðsson skrifar
160 manns greinast með krabbamein í lungum á hverju ári hérlendis - þrír af hverjum 10 lifa ár frá greiningu.
160 manns greinast með krabbamein í lungum á hverju ári hérlendis - þrír af hverjum 10 lifa ár frá greiningu. NordicPhotos/AFP
Brugðist hefur verið við grun um að tíðni reykinga sé töluvert hærri í hópi innflytjenda en annarra landmanna með útgáfu á upplýsingaefni um lungnakrabbamein á pólsku. Alþjóðadagur lungnakrabbameins er í dag og ákvað samstarfshópur um lungnakrabbamein á Landspítala að gefa út bækling um sjúkdóminn á pólsku. Fyrri útgáfur upplýsingaefnisins voru aðeins gefnar út á íslensku og ensku.

Markmiðið er að allir sem greinast með lungnakrabbamein hér á landi fái bæklinginn í hendur við greiningu en þeir eru árlega um 160 talsins. Á Íslandi eru innflytjendur um tíu prósent landsmanna og um 40 prósent þessara rúmlega 30 þúsund innflytjenda eru Pólverjar, sem ekki allir tala ensku. Mjög hefur skort á upplýsingar til þessara einstaklinga og ættingja þeirra, er mat þeirra íslensku sérfræðinga sem standa að útgáfunni.

Efni útgáfunnar miðast við hérlendar aðstæður. Aðaláherslur eru á nýjungar í meðferð, bæði lyfja- og geislameðferð, en einnig framfarir í skurðaðgerðum. Einnig er fjallað um berkjuómspeglun (EBUS) sem nú er gerð á Íslandi, en einnig jáeinda­skanna sem væntanlegur er hingað til lands innan skamms.

Loks er lögð áhersla á reykingavarnir og hvernig hætta má reykingum, en 90% lungnakrabbameins má rekja til reykinga. Þetta telja höfundar mikilvægt atriði því óvíða í heiminum hefur náðst jafn góður árangur í reykingavörnum og hér á landi, en aðeins um ellefu prósent fullorðinna Íslendinga reykja.

Lungnakrabbamein eru algengasta dánarorsök af völdum krabbameina meðal iðnvæddra vestrænna þjóða.

Meinin voru áður tvöfalt algengari hjá körlum en konum, en nú eru þau nánast jafn algeng hjá báðum kynjum. Er nú svo komið að það er orðið næstalgengasta krabbameinið bæði meðal karla og kvenna. Brjóstakrabbamein er algengara hjá konum og blöðruhálskirtilskrabbamein hjá körlum. 

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu




Fleiri fréttir

Sjá meira


×