Lífið

Sjáðu krakkana sem taka þátt í Jólastjörnunni 2016

Stefán Árni Pálsson skrifar
Aðeins eru stelpur í keppninni í ár.
Aðeins eru stelpur í keppninni í ár.
Nú er ljóst hvaða tólf keppendur taka þátt í Jólastjörnunni 2016. Í ár er Jólastjarnan haldin í fimmta skiptið og fá þá ungir söngsnillingar tækifæri á að syngja með Jólagestum í Höllinni í söngkeppni fyrir 16 ára og yngri.

Til að taka þátt þurftu þátttakendur senda myndband af sér að syngja á skráningarsíðu Jólastjörnunnar á Vísi. Þátttakendur sungu lag að eigin vali, með sínu nefi og sendu inn hlekk á myndbandsupptöku.

Dómnefndin valdi tólf bestu söngvarana sem voru boðaðir í prufur.

Stöð 2 gerir sérstaka þáttaröð um allt ferlið og var fyrsti þáttur af þremur sýndur í gær. Í honum og þættinum í næstu viku koma keppendurnir tólf í prufur og í þeim þriðja er sigurvegarinn afhjúpaður.

Sigurvegarinn mun syngja með Jólagestum Björgvins, 10. desember í Laugardalshöllinni. Hálfdán Helgi Matthíasson bar sigur úr býtum í Jólastjörnunni 2015 en hann var valin úr hópi um tvö hundruð barna sem sóttu um með því að senda myndbönd inn á Vísi.

Jólastjarnan 2014 var Gunnar Hrafn Kristjánsson, 11 ára drengur, nemandi í Salaskóla í Kópavogi. Jólastjarnan 2013 var Eik Haraldsdóttir, fædd og uppalin á Akureyri. Stella Kaldalóns sigraði keppnina árið 2012, sem kom henni ánægjulega á óvart en skólasystkini hennar voru aldrei í vafa um að hún myndi vinna.

Hinn 14 ára gamli Aron Hannes Emilsson frá Grundarfirði bar á sigur úr býtum í fyrstu keppninni og kom fram þann 3. desember 2011.

Hér að neðan má sjá þá tólf keppendur sem taka þátt í keppninni í ár og þær upptökur sem þeir sendu inn.

Guðrún Lilja Dagbjartsdóttir Karen Rut Robertsdóttir Hafdís Jana Birta Birgis Heiða Rós Björnsdóttir Aníta Daðadóttir Helga Sonja Matthíasdóttir
Perla Sóley Arinbjörnsdóttir Eydís Elfa Örnólfsdóttir Íris Embla Jónsdóttir Sesselja Ósk Stefánsdóttir





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.