Innlent

Búið að opna svæðið við Sólheimajökul

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
Sólheimajökull.
Sólheimajökull. vísir/vilhelm
Lögreglan á Suðurlandi hefur skoðað svæðið við Sólheimajökul sem lokað var í gær vegna aurskriða og grjóthruns og ákveðið að opna svæðið á ný. Fundnar hafa verið nýjar gönguleiðir að jöklinum, en þeir sem hyggja á ferðalög á jökulinn er bent á að vera í sambandi við þau fyrirtæki sem starfa á svæðinu.

Þá hvetur lögreglan fólk til að fara varlega á svæðinu og fylgjast með veðri og spá.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×