Innlent

Heitavatnslaust í Grafarvogi

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Fólki er ráðlagt að hafa glugga lokaða til að koma í veg fyrir að það kólni.
Fólki er ráðlagt að hafa glugga lokaða til að koma í veg fyrir að það kólni. vísir/pjetur
Heitavatnslaust er í Grafarvogi þessa stundina vegna bilunar. Fólk er því beðið um að hafa skrúfað fyrir alla heitavatnskrana til að draga úr hættu á slysi eða tjóni þegar vatnið kemst á að nýju.

Í tilkynningu frá Veitum er fólki ráðlagt að hafa glugga lokaða og útidyr ekki opnar lengur en þörf krefur til að koma í veg fyrir að það kólni.

Unnið er að viðgerð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×