Innlent

Magnaður viðsnúningur í Sandgerði

Svavar Hávarðsson skrifar
Jafn margir Sandgerðingar vinna nú á Keflavíkurflugvelli og við sjávarútvegsfyrirtæki bæjarins.
Jafn margir Sandgerðingar vinna nú á Keflavíkurflugvelli og við sjávarútvegsfyrirtæki bæjarins. vísir/friðrik þór
Algjör viðsnúningur hefur orðið á fasteignamarkaði í Sandgerðisbæ á innan við tveimur árum. Fyrir rúmu ári átti Íbúðalánasjóður um 90 eignir af 560 íbúðum í bænum. Þar af stóðu 50 auðar og lágu undir skemmdum. Nú er allt húsnæði Íbúðalánasjóðs selt, engin hús standa tóm og hreyfing er að komast á nýbyggingar ef fram heldur sem horfir.

Sigrún Árnadóttir, bæjarstjóri í Sandgerðisbæ, játar því að viðsnúningurinn sé með nokkrum ólíkindum og mikil eftirspurn sé bæði eftir húsnæði til leigu og sölu. Á borði bæjaryfirvalda liggi umsóknir um lóðir fyrir á milli fimmtán og tuttugu íbúðir, en fyrir tveimur árum hafi lítil sem engin eftirspurn verið eftir nýbyggingum.

Sigrún Árnadóttirvísir/gva
„Það var mjög mikið af íbúðarhúsnæði hérna í mikilli niðurníðslu. Ég hafði þungar áhyggjur af því hvernig þetta myndi fara. Einhverjar eignir voru keyptar af fasteigna- eða leigufélögum en einnig einstaklingum. Þetta er beggja blands. Við götur sem manni þótti dapurlegar ásýndum er fólk að gera upp eignir; það er verið að mála og skipta um þök og endurnýja glugga. Það er bara reglulega gaman að segja frá þessu, því það var verulegt áhyggjuefni hvað þetta myndi þýða fyrir bæinn í heild. Áhrif þess að húsnæði sé í þessu ástandi eru þekkt á aðrar eignir á sama svæði,“ segir Sigrún og viðurkennir fúslega að það sé gaman fyrir bæjarstjóra að sjá alla þessa uppbyggingu.

Sigrún segir að kynning Isavia á framtíðarhugmyndum um uppbyggingu á Keflavíkurflugvelli – þróunaráætlun eða svokallað Master­plan – hafi haft áþreifanleg áhrif á fasteignamarkaði í Sandgerði um leið og hún var kynnt vorið 2015. Síðan hafi bæði ungt fjölskyldufólk og eldra fólk verið að flytjast til bæjarins. Hún hefur orð á því að atvinnuástandið á Suðurnesjum hefur tekið stakkaskiptum – árið 2010 þegar hún tók við sem bæjarstjóri hafi verið 18 prósent atvinnuleysi en nú mælist það varla eða ekki.

„Það fjölgaði í grunnskólanum hérna í Sandgerði um 20 prósent á milli skólaára. Svo staðan er í raun ósambærileg við það sem var hér fyrir ekki löngu síðan,“ segir Sigrún og bætir við að frekari fjölgun í bænum sé fyrirsjáanleg. Fólk af erlendu bergi brotið er fjölmennt í bænum – eða um sautján prósent bæjarbúa – og þar sem vinnandi hendur á Suðurnesjum séu nú af skornum skammti þá verði samfélagið í Sandgerði enn fjölbreyttara innan skamms tíma, ef spár um uppbyggingu rætast.

Sögulega hefur Sandgerði alltaf verið sterkt sjávarútvegspláss en nálægðin við Keflavíkurflugvöll hefur breytt hlutföllum með áberandi hætti – en flugvöllurinn stendur einmitt á landi Sandgerðisbæjar. Sigrún telur að í dag starfi um það bil jafn margir á flugvallarsvæðinu og við fiskvinnslu og sjósókn í Sandgerði – sem einhvern tímann hefði verið saga til næsta bæjar.

Fyrir liggur einnig að byggja þarf fimm íbúðir fyrir fólk með fötlun og var samningur þess efnis undirritaður við Þroskahjálp í mars síðastliðnum. Beðið er eftir grænu ljósi frá Íbúðalánasjóði með stofnfjárframlag, sem er forsenda uppbyggingarinnar.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×