Innlent

Framvísuðu fölsuðum skilríkjum

Samúel Karl Ólason skrifar
Vísir/Vilhelm
Tveir karlmenn voru handteknir í Flugstöð Leifs Eiríkssonar á föstudaginn eftir að þeir framvísuðu fölsuðum skilríkjum. Mennirnir, sem sögðust vera vinir, framvísuðu báðir skilríkjum frá Grikklandi, en rétt vegabréf þeirra fundust í farangrinum.

Samkvæmt tilkynningu frá Lögreglunni á Suðurnesjum viðurkenndi báðir brot sín og er málið í hefðbundnu ferli.

Annar maður var svo stöðvaður á föstudaginn vegna gruns um að hann væri ekki lögmætur handhafi vegabréfsins sem hann framvísaði, sem reyndist rétt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×