Innlent

60 milljónir söfnuðust fyrir Stígamót

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Féð sem safnaðist verður notað til að bæta þjónustuna sem Stígamót veita.
Féð sem safnaðist verður notað til að bæta þjónustuna sem Stígamót veita. Vísir/Daníel
Alls söfnðust 60.386.000 krónur í söfnunarátaki Stígamóta sem hófst þann 11. nóvember síðastliðinn og náði hámarki sínu með söfnunarþætti á Stöð 2 síðastliðið laugardagskvöld. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Stígamót en féð sem safnaðist fer í að bæta þjónustu samtakanna sem þegar eru farin að undirbúa þau verkefni sem ráðast þarf í.

Í tilkynningu Stígamóta kemur fram að fjöldi fólks hafi komið að átakinu. Þannig hafi listafólk gefið vinnu sína, Stígamótafólk deildi sögum sínum og sjálfboðaliðar mönnuðu símaverið.

„Í tengslum við söfnunina átti sér stað mikil vitundarvakning og fjöldi þeirra sem hafa leitað sér hjálpar síðustu vikur er mun meiri en í meðal árferði.  

Við erum hrærð og óendanlega þakklát fyrir stuðning ykkar sem gerir okkur kleift að ná til fleiri hópa,  þjónusta fleiri staði og auka fræðslu og vitundarvakningu,“ segir í tilkynningu Stígamóta sem sjá má í heild sinni hér að neðan. 

Þann 18. nóvember sl. létum við á það reyna hvort almenningur, fyrirtæki og stofnanir vildu leggjast á eitt með okkur við að bæta og auka þjónustu Stígamóta.  Margir tóku við sér og það söfnuðust  60.386.000 krónur.  Hver króna fer í að bæta þjónustuna og við erum þegar farin að undirbúa þau brýnu verkefni sem ráðist verður í.

 

Fjöldi fólks kom að átakinu. Listafólk gaf vinnu sína og Stígamótafólk deildi sögunum sínum.  Sjálfboðaliðar mönnuðu símaverið.  Auglýsingastofan Pipar vann þrekvirki og samstarfið við starfsfólk 365 miðla gekk mjög vel.  

Bindi og sokkapar frá forseta Íslands voru seld á uppboði.  Dregnir voru út ferðavinningar og fleiri vinningar og eru vinningshafar listaðir upp á heimasíðu Stígamóta www.stigamot.is og á Facebook síðunni okkar.  

Í tengslum við söfnunina átti sér stað mikil vitundarvakning og fjöldi þeirra sem hafa leitað sér hjálpar síðustu vikur er mun meiri en í meðal árferði.  

Við erum hrærð og óendanlega þakklát fyrir stuðning ykkar sem gerir okkur kleift að ná til fleiri hópa,  þjónusta fleiri staði og auka fræðslu og vitundarvakningu.  

Takk fyrir stuðninginn

Starfsfólk Stígamóta






Fleiri fréttir

Sjá meira


×