Innlent

Lögreglan óskar eftir vitnum að nokkrum innbrotum á höfuðborgarsvæðinu um helgina

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Brotist var inn í nokkur einbýlishús á höfuðborgarsvæðinu um helgina þar sem þjófarnir spenntu upp glugga til að komast inn.
Brotist var inn í nokkur einbýlishús á höfuðborgarsvæðinu um helgina þar sem þjófarnir spenntu upp glugga til að komast inn. vísir/ktd
Brotist var inn í nokkur einbýlishús á höfuðborgarsvæðinu um helgina þar sem þjófarnir spenntu upp glugga til að komast inn.

Í tilkynningu frá lögreglu kemur fram að „svo virðist sem litlu hafi verið stolið í þessum innbrotum, en í tveimur tilvikum lögðu þjófarnir á flótta eftir að húsráðendur höfðu orðið þeirra varir. Um er að ræða einbýlishús í botnlangagötum, en flest innbrotanna áttu sér stað að kvöld- og næturlagi.“

Lögreglan telur ekki ósennilegt að einhver eða einhverjir hafi séð til þjófanna og því ítrekar hún það að fólk láti lögreglu vita af grunsamlegum mannaferðum. Einnig að fólk skrifi hjá sér bílnúmer og jafnvel lýsingar á fólki ef eitthvað óvenjulegt á sér stað í nánasta umhverfi.

„Innbrotsþjófar fylgjast gjarnan með húsum áður en þeir láta til skarar skríða og því er mikilvægt að hafa þessi atriði í huga. Munið að það er betra að hringja einu sinni of oft í lögregluna með upplýsingar af þessi tagi en einu sinni of sjaldan. Lögreglan vill ennfremur minna á mikilvægi þess að fólk gangi tryggilega frá heimilum sínum þegar það fer að heiman og ekki er úr vegi að tilkynna nágrönnum um slíkt, en nágrannavarsla getur skipt sköpum þegar kemur að því að upplýsa innbrot eða koma í veg fyrir þau.

Upplýsingum má koma á framfæri í síma 444-1000, með einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu eða í tölvupósti á netfangið abending@lrh.is Ef óskað er eftir skjótri aðstoð lögreglu vegna yfirstandandi innbrots skal undantekningarlaust hringja í 112,“ segir í tilkynningu lögreglu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×