Innlent

Tvær tilkynningar um heimilisofbeldi

Samúel Karl Ólason skrifar
Vísir/Getty
Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tvær tilkynningar um heimilisofbeldi í gærkvöldi. Í annað skiptið réðst ölvaður heimilisfaðir á eiginkonu sína. Þá tók hann börn þeirra sem eru eins og tveggja ára gömul og ók frá heimilinu þar sem hann var stöðvaður af lögreglu.

Samkvæmt dagbók lögreglu var maðurinn vistaður í fangageymslu og börnin færð í umsjá móður þeirra. Barnavernd var tilkynnt um málið.

Einnig var tilkynnt um heimilisofbeldi í Hafnarfirði þar sem faðir og dóttir voru vistuð í fangageymslu vegna rannsókn málsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×