Bonneau sagt upp hjá Njarðvík: Sjokkerandi niðurstaða Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 30. nóvember 2016 15:18 Stefan Bonneau í leik með Njarðvík. Vísir
Stefan Bonneau er farinn frá Njarðvík og spilar því ekki meira með liðinu í Domino's-deild karla. Þetta staðfesti hann í samtali við Vísi í dag en Bonneau gekk fyrst í raðir Njarðvíkinga í desember 2014. Bonneau, sem er bakvörður, sló í gegn á sínu fyrsta tímabili og skrifaði undir nýjan samning við félagið í lok þess tímabils. Hann sleit hins vegar hásin rétt áður en síðasta tímabil hófst en sneri aftur rétt fyrir úrslitakeppnina. Eftir aðeins fáeinar mínútur í fyrsta leik sínum eftir meiðslin varð hann fyrir því óláni að slíta hásin í hinni löppinni. „Þetta var þeirra ákvörðun,“ sagði Bonneau í samtali við Vísi í dag. „Þeir vildu stóran mann og ég er augljóslega ekki stór enda bakvörður.“ Bonneau segist vera enn að koma sér á strik eftir meiðslin. „Ég hef verið að eflast með hverjum degi eftir meiðslin og er enn að bæta mig,“ segir hann og bætir því við að hann haldi því opnu að spila áfram, hvort sem er á Íslandi eða annars staðar. „Niðurstaðan er sjokkerandi fyrir mig því ég átti ekki von á þessu. En þetta var alfarið þeirra ákvörðun,“ sagði hann enn fremur. Daníel Guðni Guðmundsson, þjálfari Njarðvíkur, vildi ekki staðfesta tíðindin í samtali við Vísi í dag og ekki náðist í Gunnar Örlygsson, formann körfuknattleiksdeildar Njarðvíkur. Bonneau hefur komið við sögu í sjö leikjum Njarðvíkur á þessu tímabili og spilað að meðaltali rúmar 22 mínútur í þeim og skorað 18,3 stig. Njarðvík skipti út miðherjanum Corbin Jackson fyrir Jeremy Atkinson fyrr í þessum mánuði og hefur Njarðvík unnið báða leiki sína eftir að hann kom, gegn KR og Haukum. Sjá einnig: Körfuboltakvöld: Bonneau er stór hluti af vandamáli Njarðvíkinga
Dominos-deild karla Mest lesið Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Enski boltinn Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Formúla 1 Viktor Gísli öflugur gegn PSG Handbolti Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti ÍBV og Grótta með sigra Handbolti Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Fótbolti Arsenal sneri dæminu sér í vil Fótbolti Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Fótbolti Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Handbolti Birkir á leið til Vals á nýjan leik Íslenski boltinn Fleiri fréttir Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Sjá meira