Lífið

Madonna hristi rassinn á rúntinum með Corden: Viðurkenndi að hafa farið í sleik við Michael Jackson

Stefán Árni Pálsson skrifar
Svakalegur rúntur.
Svakalegur rúntur.
James Corden og Madonna fóru á rúntinn um New York borg á dögunum en hann keyrir oft um með stjörnum í dagskrálið sem nefnist Carpool Karaoke.

Corden stýrir þættinum The Late Late Show vestanhafs en vinirnir keyrðu um saman og sungu nokkur vel valinn lög.

Madonna tók til að mynda svakalegt dansspor inni í bílnum og kannast margir kannski við athæfið, en á ensku kallast þetta „twerking“.

Corden var að vanda mjög vel undirbúinn að hafði lært öll helstu lög söngkonunnar. Corden tók lagið Don't Cry For Me Argentina úr kvikmyndinni Evita með Madaonna og táraðist hann undir lokin.

Einnig kom í ljós að Madonna hefur farið í sleik við Michael Jackson. Hún hafði aldrei áður talað um það opinberlega.

Hér að neðan má sjá til hvernig til tókst.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.