Enski boltinn

Ég var vandamálið en ekki Mourinho

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Henrikh Mkhitaryan fagnar með Marcus Rashford og stuðningsmönnum United.
Henrikh Mkhitaryan fagnar með Marcus Rashford og stuðningsmönnum United. Vísir/Getty
Armeninn Henrikh Mkhitaryan hefur ekki beint labbað inn í byrjunarliðið hjá Manchester United eftir að félagið keypti hann frá Dortmund í sumar.

Henrikh Mkhitaryan vill alls ekki kvarta undan knattspyrnustjóranum Jose Mourinho þrátt fyrir að hafa fengið fá tækifæri miðað við mann sem félagið borgaði um 30 milljónir punda fyrir í sumar.

Mkhitaryan er staðráðinn í að sannfæra Mourinho með frammistöðu sinni inn á vellinum.

Henrikh Mkhitaryan var í byrjunarliðinu í leiknum um Samfélagsskjöldinni í ágúst og spilaði fyrstu deildarleikina en missti sæti sitt eftir að hafa verið skipt útaf í hálfleik í 2-1 tapi á móti Manchester City.

„Ég hélt ég væri að koma hingað sem byrjunarliðsleikmaður en svo sá ég að það voru 25 leikmenn að berjast um sæti í liðinu og um leið áttaði ég mig á því að það yrði allt annað en auðvelt að komast í liðið,“ sagði í viðtali við Sky Sports.

„Það var ekkert slæmt á milli okkar Mourinho. Okkar samband var gott. Ég var vandamálið en ekki Mourinho,“ sagði Mkhitaryan.

Mkhitaryan fékk tækifæri í byrjunarliðinu í 1-1 jafntefli á móti West Ham eftir tveggja mánaða veru í kuldanum og stóð sig síðan mjög vel í 4-1 sigri á West Ham í deildabikarnum þremur dögum seinna þar sem hann lagði upp tvö mörk.

„Núna skil ég að ég þarf að stökkva á tækifærin mín og gera síðan allt til að halda sæti mínu. Það er mjög mikilvægt fyrir mig að spila og vera hluti af þessu Manchester United liði,“ sagði Henrikh Mkhitaryan.

„Ég átti slæman leik á móti Manchester City en það tilheyrir fortíðinni. Ég hef staðið mig vel í að koma til baka. Stjórinn hefur úr mörgum mönnum að velja enda eru fimm til sex menn sem geta spilað mín stöðu. Ég veit hvað ég þarf að gera til að fá að spila,“ sagði Mkhitaryan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×