„Lagið mun veita okkur ómetanlega hjálp við að vekja athygli á sönnum gjöfum. Hægt er að hlusta á það og horfa á myndbandið við það á vefnum sannargjafir.is þar sem fólk getur keypt gjafabréf og gefið hvert öðru í jólagjöf.
Hvert gjafabréf gefur hjálpargögn fyrir börn, svo sem námsgögn, hlý teppi og moskítónet. Þannig gera sannar gjafir fólki kleift að rétta hjálparhönd á einfaldan og skemmtilegan hátt.“
Sigríður segir sannar gjafir hafa notið mikilla vinsælda hér á landi, ekki síst fyrir jólin, og nú leggi Prins Póló og hljómsveitin Gosar sitt af mörkum til að benda enn fleirum á þennan skemmtilega möguleika og gera heiminn betri.
Í myndbandinu sem fylgir laginu koma meðal annars fyrir ofskreytt jólatré, jólaskreyttur Valdimar og tónlistarmenn að smakka vítamínbætt jarðhnetumauk í ískulda.
„Við erum himinlifandi með lagið og myndbandið og þetta hlýja og góða framtak,“ segir Sigríður. „Lagið kemur manni síðan beint í jólaskapið!“

Þetta segir svo listamaðurinn Prins Póló um gerð lagsins Jólakveðju.
Rétt fyrir síðustu jól greip mig gríðarleg jólastemning. Þar sem ég stóð inni í stofunni heima var eins og andi jólanna ætlaði að bera mig ofurliði. Ég staulaðist inn í svefnherbergi og greip með mér lítið Casio-hljómborð. Ég settist á rúmstokkinn og á skömmum tíma vall upp úr mér lítið jólalag.
Ég stakk laginu ofan í skúffu þar til nú í haust þegar ég dustaði af því rykið. Þegar Gosarnir, þeir Valdimar Guðmundsson, Snorri Helgason, Teitur Magnússon og Jón Mýrdal, heimsóttu okkur fjölskylduna í sveitina um daginn þá var ég langt kominn með að hljóðrita lagið og fékk ég því drengina til að leggja raddir sínar og gítarþukl ofan á upptökuna. Því næst sendi ég lagið í hljóðblöndun til Axels Árnasonar.
Þegar ég fékk lagið aftur í hendurnar velti ég því fyrir mér hvað ég ætti að gera við það og í anda boðskapar lagsins ákvað ég að gefa Unicef það.
Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 3. desember 2016.