Lífið

GKR mætti í Kronik og tók nýjasta smellinn

Stefán Árni Pálsson skrifar
Rapparinn GKR kom í hljóðverið á X-inu og tók lagið Tala um í beinni í útvarpsþættinum Kronik á laugardaginn.

Útvarps þátturinn Kronik er hafinn á ný eftir 10 ára hlé. Þátturinn hóf göngu sína á X-inu 1993 og eins og flestir kannski muna þá sérhæfði þátturinn sig í hip hop og rap tónlist og ruddi veginn fyrir íslensku hip hop og rap senunni.

Umsjónar menn þáttarins eru Róbert Aron Magnusson og Benedikt Freyr Jónsson en í hverri viku þá munu þeir fá til sín góða gesti og gesta plötsnúða. Kronik er á dagskrá á laugardögum milli klukkan 17 og 19.

Hér að ofan má sjá myndband af því þegar GKR mætti í hljóðver X-ins. 


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.