Lífið

Sló í gegn hjá blaðamanni The Guardian

Guðný Hrönn skrifar
Kristín Jóhannsdóttir er safnstjóri Eldheima.
Kristín Jóhannsdóttir er safnstjóri Eldheima. Mynd/Baju Wijono
Gosminjasýningin Eldheimar fékk aldeilis flotta viðurkenningu á dögunum þegar blaðamaður The Guardian hrósaði sýningunni í hástert á lista yfir bestu ferðauppgötvanir þessa árs. Kristín Jóhannsdóttir, safnstjóri Eldheima, er að vonum himinlifandi með umsögnina.

„Þetta er náttúrulega alveg rosalega flott og stórt,“ segir safnstjórinn Kristín Jóhannsdóttir um umsögn blaðamanns The Guardian Roberts Hull. „Við erum að tala um að við erum það eina af Norðurlöndunum sem kemst inn á þennan lista. Þetta segir okkur að við erum búin að gera ansi margt rétt og það er verið að staðfesta við okkur að safnið er velheppnað og að það sé þess virði að heimsækja það. Auðvitað höfum við haft trú á safninu alveg frá því að Vestmannaeyjabær ákvað að setja peninga í þetta, en það er gott að fá það staðfest að hér var vandað til verka,“ segir Kristín. Hún bætir við að sýningarhönnuður Eldheima, Axel Hallkell Jóhannesson, eigi hrós skilið. „Hann kann að búa til stemningu. Gestir fá ákveðna upplifun og eru sendir í ferðalag, þeir kaupa ekki bara miða og ráfa svo um safnið.“

Gosminjasýningin Eldheimar miðlar fróðleik um eldgosið í Vestmannaeyjum árið 1973.Mynd/eldheimar.is
Kristín segir skipta miklu máli að gestir komi á sjálfan staðinn þar sem hlutirnir sem um ræðir gerðust, þannig verður uplifunin magnaðri. „Safnið er í túnjaðrinum við eldfjallið og við erum með rúst af húsi sem var grafið upp úr ösku til sýnis og byggjum yfir rústir. Þannig að þetta er alvöru.“

Gosminjasýningin Eldheimar var opnuð um vorið árið 2014, Kristín segir reksturinn hafa gengið vonum framar. „Já, þetta er búið að spyrjast alveg rosalega vel út. Aðsóknin hefur farið fram út björtustu vonum en við erum að tala um að tæplega 40.000 gestir hafa sótt safnið á þessu ári. Og við erum í Vestmannaeyjum, það þarf að fara yfir sjó og land, þannig að þetta verður að teljast góður árangur,“ segir Kristín sem á von á að umsögnin í The Guardian muni ýta undir aðsókn að safninu enda er um ansi góða auglýsingu að ræða.

„Safnið er fyrir alla,“ segir Kristín svo aðspurð fyrir hvern safnið sé. Það vekur lukku hjá ungum sem öldnum. „Meira að segja litlu börnin, þeim finnst líka gaman að skoða safnið. Svo er boðið upp á hljóðleiðsögn á fimm tungumálum en ég á líka prentaðan texta á fleiri tungumálum þannig að flestir ættu að geta sett sig inn í efnið,“ útskýrir Kristín.

„Við erum bara yfir okkur ánægð því safnið hefur bætt við ferðaþjónustuna í Vestmannaeyjum.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×