Lífið

Svona gerir þú minnstu McDonald´s máltíð í heiminum

Stefán Árni Pálsson skrifar
Það geta greinilega allir gert  þetta.
Það geta greinilega allir gert þetta.
WendyMiniCity er YouTube síða sem sérhæfir sig í því að sýna frá eldamennsku á mjög smávaxinn hátt.

Nokkuð góð hugmynd en eitt af því nýjasta sem finna má á síðunni er myndband af mini-framleiðsluferlinu á hamborgaramáltíð frá skyndibitakeðjunni McDonald's.

Þar matreiðir kokkurinn pínulitla Happy Meal máltíð sem mörg börn ættu að kannast við. Hér að neðan má sjá þetta skemmtilega myndband.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×