Viðar Örn vinur vina sinna: Flogið til Amsterdam og einkapartý með Aroni Can og Skímó í Reykjavík Stefán Árni Pálsson skrifar 21. desember 2016 13:00 Viðar Örn kann að fara vel með sig og sína. vísir
Viðar Örn Kjartansson er atvinnumaður í knattspyrnu og leikur með ísraelska liðinu Maccabi Tel Aviv. Selfyssingurinn hefur komið víða við á sínum ferli og meðal annars leikið í Svíþjóð og Kína en nú býr hann í Tel Aviv. Í gegnum árin hefur töluvert verið fjallað um laun Viðars, en þau þykja mjög góð. Viðar Örn fær sitt jólafrí eins og margir atvinnumenn í íþróttum og virðist hann vera nýta sitt frí til hins ýtrasta. Viðar bauð átta vinum sínum út að borða á Tryggvaskálann á Selfossi um helgina og stóð skemmtunin fram á kvöld. Eftir það fóru drengirnir upp í rútu og var þeim ekið í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Þaðan flugu þeir út til Amsterdam þar sem þeir vinirnir skemmtu sér saman um helgina, allt í boði Viðars Arnar. Samkvæmt heimildum Vísis er Viðar Örn með yfir 100 milljónir króna í árslaun hjá Maccabi Tel Aviv.Sjá einnig: Viðar Örn dýrastur og næst launahæstur Hópurinn kom til Íslands á mánudaginn og voru þeir sóttir á rútu og ekið beint á skemmtistað í Grafarvogi og var haldið sérstakt jólahlaðborð vinahópsins. Á þeirri skemmtun kom Skítamórall, sem er einmitt frá Selfossi, fram og einnig Aron Can. Allt þetta sást vel á samfélagsmiðlinum Snapchat og mátti meðal annars sjá Viðar Örn sjálfan koma fram með Skítamóral og taka lagið. Samkvæmt heimildum Vísis var öll helgin í boði Viðars og máttu vinirnir varla opna veskið sitt. Viðar er svo sannarlega vinur vina sinna. Ekki náðist í Viðar Örn við vinnslu fréttarinnar. Hér að neðan má sjá myndir sem birtust á Instagram úr ferðinni. Allt eru þetta vinir Viðars frá Selfossi. Hér stilla vinir Viðars sér upp við sýki í Amsterdam. Gaman í gær. Gaman í dag A photo posted by Gunnar Ingi Jónsson (@gunnsi21) on Dec 18, 2016 at 7:27am PST Hér má sjá tvo vini Viðars úti á lífinu í Amsterdam Ekkert random myndataka #Gunnsi21 #eingleðikonakannski? #Ammayrðistolt #Amsterdam #Onewayout #Keyrumþettaigang #Isl-Holland #Séeftirþessuámorgun A photo posted by Fannar Ólafsson (@fannargo) on Dec 18, 2016 at 4:20pm PST Hópurinn á flugvellinum í Amsterdam Frón áðan eftirpartý í Amsterdam A photo posted by @raggitrausta on Dec 18, 2016 at 4:25am PST
Mest lesið „Það er einhver sjarmi yfir París sem er ekki annarsstaðar“ Lífið Eva flutt inn í verðlaunahús Kára Lífið Ætlar í blómabað á Balí með manninum sínum Lífið Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Lífið Gaf langömmu tattú í afmælisgjöf Lífið Mamma byrjuð að undirbúa stúdentsveislu þegar fregn barst af falli Lífið „Þegar menn vaða svona í fjölskylduna mína þá tek ég boxhanskana af“ Lífið Þriðja barnið á leiðinni Lífið Fréttatía vikunnar: Þingframboð, þýfi og brúarframkvæmdir Lífið Heldur ekki vatni yfir konunni sinni Lífið Fleiri fréttir „Það er einhver sjarmi yfir París sem er ekki annarsstaðar“ Gaf langömmu tattú í afmælisgjöf Fréttatía vikunnar: Þingframboð, þýfi og brúarframkvæmdir „Þegar menn vaða svona í fjölskylduna mína þá tek ég boxhanskana af“ Þriðja barnið á leiðinni Eva flutt inn í verðlaunahús Kára Kallaður hinn íslenski Forrest Gump af stóra bróður Heldur ekki vatni yfir konunni sinni Íris Ósk selur tryllt hönnunarhús Maggie Smith er látin Gaf eiginmanninum nektarmynd á stórafmælinu Í hnapphelduna með krókódílamanninum Kolbrún ber laxerolíu á andlitið Íslensk börn skorti meiri aga Ætlar í blómabað á Balí með manninum sínum Minnast Bryndísar Klöru á tónleikum: „Pínulítil hugmynd sem stækkaði og stækkaði“ Húðrútína ekki síður fyrir karlmenn Umdeilt uppáhald arkitekts við Austurvöll Tekinn inn í frægðarhöll rafíþróttanna Lakkrískóngurinn Bülow selur sveitasetrið Skilnaður Step Up hjóna genginn í gegn Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Tökumenn LXS yfirheyrðir í 90 mínútur og áttu ekki að fá inngöngu inn í landið Úr Idolinu yfir í útvarpið „Siðlausi siðfræðingurinn“ hreyfir ekki við Stefáni Einari Fagnaðarfundir á fyrstu frumsýningu vetrarins Hvað gerði Diddy? Mansal, ofbeldi og samsæriskenningar um Justin Bieber Steldu stílnum af heimili Laufeyjar Sama hvað fólki finnst Danska poppdívan Medina selur glæsivilluna Sjá meira