Framsetningin skiptir jafn miklu máli og gjöfin Guðný Hrönn skrifar 21. desember 2016 12:00 Blái pappírinn kemur frá merkinu Rifle Paper co.
Hin sænska Linnea Ahle, bloggari og verslunareigandi, leggur mikla áherslu á fallega framsetningu þegar kemur að jólagjöfunum. Það er ekki bara innihald pakkanna sem gleður heldur líka útlit þeirra. Linnea Ahle er mikill fagurkeri og hefur gaman af því að spekúlera í innpökkun. „Fyrir mér skiptir framsetningin, sem sagt innpökkunin, jafn miklu máli og gjöfin sjálf. Ég elska að gefa gjafir og að pakka þeim inn á fallegan hátt.“ Linnea kveðst vera með minímalískan stíl. „Ég er með týpískan skandinavískan og látlausan stíl. Ég veit alveg hvernig mig langar til að pakka inn gjöfunum löngu áður en ég byrja að pakka, þannig að þetta gengur hratt fyrir sig. Ég kaupi gjafapappír, borða og límmiða hér og þar og byrja snemma,“ segir Linnea sem notar gjafapappír frá merkinu Rifle Paper co. þetta árið, en sá pappír er einmitt seldur í verslun hennar. „Pappírinn er dökkblár og með blómamynstri.“Linnea Ahle er sannkallað jólabarn.Linnea er mikið jólabarn og heldur upp á sænskar jólahefðir sem hún var alin upp við í bland við nýjar sem hún kynntist á Íslandi. „Mínar uppáhaldsjólahefðir eru þær sem ég ólst upp við. Þær eru mjög sænskar, eins og að baka „saffron buns“ og að setja upp jóladagatal. Og á aðfangadag horfum við á Andrés Önd, sama þáttinn á sama tíma. Þetta hef ég gert frá því í barnæsku.“ Linnea og fjölskylda skiptast á að halda jólin á Íslandi og í Svíþjóð. „Þannig fær dóttir okkar tækifæri til að kynnast jólahefðum frá báðum löndum,“ segir Linnea sem á þriggja og hálfs árs dóttur með manni sínum, svo eru tvíburar á leiðinni og þau ætla að passa upp á að öll börnin fái innsýn inn í bæði sænsk og íslensk jól.
Mest lesið „Það er einhver sjarmi yfir París sem er ekki annarsstaðar“ Lífið Eva flutt inn í verðlaunahús Kára Lífið Ætlar í blómabað á Balí með manninum sínum Lífið Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Lífið Gaf langömmu tattú í afmælisgjöf Lífið „Þegar menn vaða svona í fjölskylduna mína þá tek ég boxhanskana af“ Lífið Þriðja barnið á leiðinni Lífið Fréttatía vikunnar: Þingframboð, þýfi og brúarframkvæmdir Lífið Heldur ekki vatni yfir konunni sinni Lífið Íslensk börn skorti meiri aga Lífið Fleiri fréttir „Það er einhver sjarmi yfir París sem er ekki annarsstaðar“ Gaf langömmu tattú í afmælisgjöf Fréttatía vikunnar: Þingframboð, þýfi og brúarframkvæmdir „Þegar menn vaða svona í fjölskylduna mína þá tek ég boxhanskana af“ Þriðja barnið á leiðinni Eva flutt inn í verðlaunahús Kára Kallaður hinn íslenski Forrest Gump af stóra bróður Heldur ekki vatni yfir konunni sinni Íris Ósk selur tryllt hönnunarhús Maggie Smith er látin Gaf eiginmanninum nektarmynd á stórafmælinu Í hnapphelduna með krókódílamanninum Kolbrún ber laxerolíu á andlitið Íslensk börn skorti meiri aga Ætlar í blómabað á Balí með manninum sínum Minnast Bryndísar Klöru á tónleikum: „Pínulítil hugmynd sem stækkaði og stækkaði“ Húðrútína ekki síður fyrir karlmenn Umdeilt uppáhald arkitekts við Austurvöll Tekinn inn í frægðarhöll rafíþróttanna Lakkrískóngurinn Bülow selur sveitasetrið Skilnaður Step Up hjóna genginn í gegn Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Tökumenn LXS yfirheyrðir í 90 mínútur og áttu ekki að fá inngöngu inn í landið Úr Idolinu yfir í útvarpið „Siðlausi siðfræðingurinn“ hreyfir ekki við Stefáni Einari Fagnaðarfundir á fyrstu frumsýningu vetrarins Hvað gerði Diddy? Mansal, ofbeldi og samsæriskenningar um Justin Bieber Steldu stílnum af heimili Laufeyjar Sama hvað fólki finnst Danska poppdívan Medina selur glæsivilluna Sjá meira