Parlogis og Orange Project hefja samstarf Sæunn Gísladóttir skrifar 24. október 2016 13:03 Tómas Hilmar Ragnarz, framkvæmdastjóri Orange og Hálfdan Gunnarsson, forstjóri Parlogis. Mynd/Orange Project
Orange Project og Parlogis ehf. hafa gert með sér samstarfssamning sem sameinar krafta fyrirtækjanna á sérsviðum beggja og gerir þeim kleift að bjóða smærri heildsölum og sölufyrirtækjum fyrsta flokks þjónustu hvað varðar húsnæðislausnir, vörustjórnun og dreifingu segir í tilkynningu. Orange Project hefur í tvö ár boðið upp á tilbúnar skrifstofulausnir fyrir fyrirtæki sem sjá sér hag í að setja alla sína krafta í kjarnastarfsemina og spara fé og fyrirhöfn með því að losna við þá yfirbyggingu sem fylgir hefðbundnum skrifstofurekstri. Samningur fyrirtækjanna felur í sér að Orange leigir skrifstofuhúsnæði að Skútuvogi 3 þar sem Parlogis rekur einnig rúmlega 3000 fermetra vöruhús fyrir þurrvörur, kælivörur og frystivörur. Húsnæðið verður tilbúið til leigu þann 1. nóvember og með þessu samstarfi Parlogis og Orange geta smærri heildsölur og sölufyrirtæki komið sér fyrir á einum stað með alla þá þjónustu sem þarf til rekstrarins. Allt frá húsnæðislausnum til sérhæfðrar vörustjórnunar. Um er að ræða 19 fullbúin skrifstofurými, auk opinna rýma og fyrsta flokks fundarherbergja. Auk leigu á skrifstofurýmum mun fyrirtækjum jafnframt standa til boða þjónusta frá Parlogis á sviði vöruhýsingar, birgðastýringar, dreifingar, innflutnings, innheimtu o.fl. Hagkvæmnin sem fylgir því að láta þessi tvö sérhæfðu fyrirtæki sjá um alla þessa umgjörð er mikil og gefur viðskiptavinum Parlogis og Orange Warehouse tækifæri til þess að setja alla sína orku í kjarnastarfsemina.
Mest lesið Einföld leið til að nýta hugmyndavinnu oftar Atvinnulíf Sektuð fyrir að segjast vera best Neytendur „Langstærsta“ vikan í sögu Ölgerðarinnar Viðskipti innlent Starbucks opnar á Íslandi Viðskipti innlent Gervigreindin sögð „bjargvættur“ jarðgassiðnaðarins Viðskipti erlent Eldamennskan og jólaljósin algengasti brunavaldur um hátíðirnar Samstarf Nefna fimm veitingastaði að baki „gervikjarasamningi“ Viðskipti innlent Að kúpla okkur frá vinnu um jólin Atvinnulíf Kilroy hafi veitt ferðamönnum rangar upplýsingar Neytendur Grýlan sem segir vekjaranum að grjóthalda kjafti Atvinnulíf Fleiri fréttir „Langstærsta“ vikan í sögu Ölgerðarinnar Nefna fimm veitingastaði að baki „gervikjarasamningi“ Raforka til gagnavera snarminnkað Þekktir netþrjótar réðust á kerfi Wise Discover hefur flug milli München og Íslands Hærri barnabætur og ný gjöld á nikótínvörur á nýju ári Hluthafarnir samþykkja samruna Marels við JBT Sekta þau sem ekki greiða rétt fargjald um fimmtán þúsund krónur Elma Sif til Stika Solutions Baldvin sagði upp 99 manns sem mættu ekki á morgunfund Standa vörð um bílastæði viðskiptavina Kringlunnar Vonar að allir pakkar berist til þeirra fyrir jól Kortleggja tómar íbúðir í samstarfi við sveitarfélög Jóna Björk tekur við Garðheimum Segja son og tengdadóttur Reynis ekki koma nálægt Mannlífskaupum EastJet flýgur til Basel og Lyon Margrét áfram rektor á Bifröst Ingibjörg Þórdís til Elko Fimm mætt í Kauphöllina RÚV sker sér stærri sneið af auglýsingakökunni Ársverðbólga óbreytt á milli mánaða Tómar íbúðir á landinu nú um 10 þúsund Keppinautar eigi ekki að opna bækur sínar hver gagnvart öðrum Segir kaupverðið á Mannlífi ekki hátt Hætta í stjórn vegna yfirvofandi kaupa á Mannlífi Heimkaup undir hatt Samkaupa Leggja nýjan jarðstreng til Súðavíkur Heimildin að ganga frá kaupum á Mannlífi Lykilstjórnendur fá skell vegna tugmilljóna hagnaðar Segir eðlilegar skýringar á hæsta raforkuverðinu Sjá meira