Lífið

Fæddist í röngum líkama: Segist vera köttur

Stefán Árni Pálsson skrifar
Nano er köttur.
Nano er köttur. vísir
Nano, tvítug norsk kona, heldur því fram að hún hafi fæðst í röngum líkama og sé í raun köttur. Hún heldur því fram að skilningarvit hennar séu jafn öflug og hjá köttum og þá á hún við heyrn sína og sjón.

Hún kom fram í viðtali við NRK 3 og hafa nú þegar mörg hundruð þúsund manns horft á viðtalið á YouTube.

„Ég fattaði að ég væri köttur þegar ég var 16 ára en þá hafði ég farið í margar rannsóknir,“ segir Nano.

„Ég mun líklega lifa sem köttur það sem eftir er af ævi minni,“ segir hún en viðtalið við hana má sjá hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×