„Mér skilst á eigendunum Olís að margir hafi sýnt því áhuga að taka við og ég skila keflinu um leið og búið er að finna rétta fólkið,“ segir Stefán kátur í bragði.
Þegar Stefán og fjölskylda tóku við rekstrinum var það gert með þeim formerkjum að þau myndu rífa staðinn upp en hann hafði þá verið í nokkurri niðurníðslu um tíma. „Við lögðum upp með að hafa þetta á þjóðlegum nótum og bjóða upp á kjötsúpu og annað í þeim dúr. Það féll vel í kramið enda hefur Litla kaffistofan oftar en einu sinni og oftar en tvisvar verið valin vinsælasti áningarstaðurinn við þjóðveg 1.

Stefán telur líklegt að fólk sem líti við á Litlu kaffistofunni sæki, auk veitinganna, í þennan félagsskap. „Það eru auðvitað ekki nema átján til nítján kílómetrar hingað úr Árbænum en menn sem á annað borð byrja að venja komur sínar hingað koma aftur og aftur.“ Aðspurður segir Stefán þetta aðallega vera hinar vinnandi stéttir en líka fólkið á götunni sem er að fara í sumarbústað og annað í þeim dúr. „Hin síðari ár höfum við auk þess notið góðs af hinum mikla fjölda erlendra ferðamanna sem sækir landið heim.“
Stefán lítur björtum augum fram á veginn. „Það er helst að ég hafi áhyggjur af knattspyrnuúrklippunum sem eru hér uppi um alla veggi,“ segir Stefán en hann hefur klippt út knappspyrnuumfjallanir í dagblöðum í sextíu ár og spanna þær stóran hluta knattspyrnusögunnar á Íslandi. „Ég vona að þær fái að hanga uppi eða fái í það minnsta góðan samastað því ég ætla ekki að taka þær með mér í gröfina.“
Stefán er sjálfur gallharður ÍA-maður þrátt fyrir að vera fæddur og uppalinn í Vík í Mýrdal. „Ég heillaðist svo af búningum Skagamanna sem lítill pjakkur og hef haldið með þeim síðan,“ segir Stefán sem missir helst aldrei af ÍA-leik.
Hann og fjölskyldan hafa líka verið seig að mæta í vinnuna. „Það kemur yfir mann smávegis karlagrobb með aldrinum og ég hef gaman af því að segja frá því að í öll þessi 24 ár höfum við alltaf haft opið þá daga sem á að vera opið. Við lokum 2-3 frídaga á ári en aðra daga höfum við opnað óháð veðri og vindum. Stundum höfum við verið fjóra tíma á leiðinni og fjóra tíma til baka en alltaf höfum við opnað.“
