Vill tveggja ára fangelsi fyrir að eiga titrara Ritstjórn skrifar 14. apríl 2016 21:30 Ted Cruz
Forsetaframbjóðandi rebúblikana, Ted Cruz, toppaði sig í dag þegar hann tilkynnti að hann vildi láta banna titrara og önnur kynlífsleikföng. Já, þið lásuð rétt. Hann Ted, vinur okkar, ætlar að skipta sér af því hvernig konur fá fullnægingu með því að banna þessa annars ágætu hluti. Því jú hvar annarsstaðar en í heimaríki hans, Texas, er bannað að auglýsa og selja klúr og dónaleg kynlífshjálpartæki. Þar er fullyrt að slík tól og tæki stuðli að óheilbriðgðu kynlífi og með þessu vilji Cruz vernda almenning og draga úr sjálfsfróun. Það sé einnig ekki tilgangur með að snerta og örva kynfæri í ólæknisfræðilegum tilgangi. Nú ef þú gerist svo sekur um þennan hroðalega glæp getur þú átt yfir höfði þér tveggja ára fangelsi. Ritstjórn Glamour óskar Cruz alls hins besta í að raka saman atkvæðum eftir þessa lagasetningu.
Mest lesið Nýtt íslenskt skómerki. Glamour "Það stóð nú aldrei til að hafa þjóðina á brjósti“ Glamour Jólagjafahandbók GLAMOUR: Fyrir heimilið Glamour Annálaðar fataáhugakonur selja úr fataskápnum Glamour Smáatriðin skipta máli hjá Chanel Glamour Erindagjörðir Kim Kardashian: Frumleg markaðsherferð? Glamour Fagurkerar fjölmenntu í opnun Geysir Heima Glamour As We Grow hlýtur verðlaun Junior Design Awards Glamour Febrúarblað Glamour er komið út Glamour Eftirminnilegir kjólar árið 2017 Glamour