Sport

Dregur sig úr tennismóti til að spila körfubolta

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Nick Kyrgios.
Nick Kyrgios. vísir/getty
Vandræðabarnið í tennisheiminum, Nick Kyrgios, heldur áfram að vera á milli tannanna á fólki.

Nú hefur hann dregið sig úr móti í Hollandi svo hann geti spilað körfuboltaleik á stjörnuhelgi NBA-deildarinnar. Í þessum leik mætist frægt fólk héðan og þaðan.

Kyrgios er sem stendur í banni eftir að hafa tapað viljandi á móti í Kína. Hann nennti ekki að vera þar lengur.

Upprunalega átti hann að fara í bann fram í janúar en eftir að hafa samþykkt að hitta íþróttasálfræðing þá verður bannið líklega stytt til 7. nóvember.

Kyrgios er í 14. sæti á heimslistanum og enginn veit hverju hann tekur upp á næst.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×