Lífið

Caitlyn Jenner tjáir sig um ránið: „Svo þakklát að það sé í lagi með hana“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Jenner var í mörg ár stjúpforeldri Kim.
Jenner var í mörg ár stjúpforeldri Kim. vísir/getty
„Ég elska stelpuna mína og eftir að hafa heyrt alla söguna er ég svo þakklát að það sé allt í lagi með hana,“ segir Caitlyn Jenner, fyrrverandi stjúpforeldri, Kim Kardashian sem var rænd á sunnudagskvöldið í Parsís.

Talið er að ræningjarnir hafi stolið skartgripum að verðmæti allt að tíu milljónum dollara en lífvörður Kardashian var ekki á staðnum þegar þjófarnir ruddust inn. Ræningjarnir eru ófundnir en samkvæmt frétt Guardian rannsakar lögreglan nú upptökur úr öryggismyndavélum.

„Þetta er áminning til okkar allra að fara ávallt varlega í þessum heimi.“


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.