Lífið

Dan Bilzerian farinn af landi brott

Birgir Örn Steinarsson skrifar
Dan Bilzerian vildi greinilega komast aftur í hitann eftir stutt ævintýri hér á landi.
Dan Bilzerian vildi greinilega komast aftur í hitann eftir stutt ævintýri hér á landi. Vísir
Glaumgosinn og nautnaseggurinn Dan Bilzerian er farinn af landi brott. Hann deildi mynd í morgun á Instagram af því þegar þyrla hans lenti á Reykjavíkurflugvelli við hlið einkaþotu hans.

Bilzerian segist vera á leiðinni til Montreal þar sem það sé mánudagur. Fyrst ætlar hann þó að stoppa í New York til þess að heilsa upp á nokkra félaga sína. Bilzerian hefur greinilega fengið sig fullsaddan af veðurfarinu hér á Klakanum því í Montreal ætlar hann að vera viðstaddur Beach Club hátíðina. Þar getur hann verið á sundskýlunni allan daginn.

Þetta er stúlkan sem fékk að fara ofan í Bláa lónið með Dan Bilzerian.Vísir
Með undirfata fyrirsætu í Bláa lóninu 

Bilzerian deildi mynd um helgina sem sýndi hann á Langjökli þar sem hann brunaði um á vélsleða. Einnig virðist vera sem hann hafi keypt sér einkaaðgang að Bláa lóninu því á myndinni sem hann póstaði þaðan er enga aðrir gesti að sjá. Sú eina sem er á myndinni með honum er undirfatamódelið Lauren Blake.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.