Lífið

Hinn rússneski Leonardo DiCaprio getur látið drauma þína rætast

Atli Ísleifsson skrifar
Athugið! Hinn raunverulegi Leonardo DiCaprio er á myndinni vinstra megin.
Athugið! Hinn raunverulegi Leonardo DiCaprio er á myndinni vinstra megin. Vísir/Getty/Instagram
Rússinn Roman Burtsev hefur að undanförnu haft það að lifibrauði að koma fram sem bandaríski leikarinn Leonardo DiCaprio. Ekki að furða enda er vissulega svipur með köppunum.

Hinn 33 ára Burtsev hefur starfað sem öryggisvörður en Washington Post segir hann nú hafa varið rúmum mánuði í að líkjast bandaríska stórleikaranum.

Á Instagram-síð sinni hefur Burtsev verið duglegur að birta myndir frá hinum ýmsu verkefnum sínum en hann hefur meðal annars verið ráðinn til að fara með hlutverk Jack úr Titanic í rússneskri verslunarmiðstöð þer sem fólki gefst færi á að upplifa eitt rómantískasta atriði kvikmyndasögunnar úr Titanic.

Einnig gefst fólk færi á að syngja dúett með meistaranum. Líklegast er þó bara eitt lag í boði – My Heart Will Go On, lag Celine Dion úr Titanic.

Sjá má myndir og myndskeið af Burtsev að neðan.

Похож? ;) #ДиКаприо24 #романсдикаприо

A photo posted by Роман Бурцев (@roman_sdicaprio) on






Fleiri fréttir

Sjá meira


×