Bílar

Í hvaða borg Evrópu er hjóli fyrst stolið?

Finnur Thorlacius skrifar
Skoda efndi til athygliverðrar keppni milli borga í Evrópu, en væntanlega munu borgaryfirvöld sigurvegarans ekki hafa fagnað ýkja mikið. Keppnin var nefnilega fólgin í því að finna út í hvaða borg fyrst yrði stolið hjóli sem skilið yrði eftir á áberandi og fjölförnum stað.

Borgirnar sem valdar voru til þátttöku þessu sinni voru Róm, Amsterdam og Prag. Ástæðulaust er að láta upp í hvaða borg hjólinu var fyrst stolið, en til þess er rétt að horfa á myndskeiðið hér að ofan, sem er reyndar bráðskemmtilegt.

Það tók “sigurvegarann” aðeins 22 mínútur og 40 sekúndur að næla í gullið, þ.e. þangað til þjófur stal hjólinu. Öllu lengur tók það í borginni sem hreppti silfrið, eða rétt innan við einn klukkutíma og 8 mínútur. Sú borg sem síðast kom í keppninni getur stært sig af því að þegar tæplega þrír klukkutímar voru liðnir var ekki enn búið að stela hjólinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×