OMAM og Baggalútur berjast um 1. sætið Gunnar Leó Pálsson skrifar 8. janúar 2016 10:00 Of Monsters and Men á líklega mest seldu plötu síðasta árs með plötuna Beneath The Skin. Mynd/Meredith Truax
Plötusala á Íslandi hefur að öllum líkindum dregist saman um 20 til 25 prósent á milli ára, ef litið er á plötusölu fyrir síðasta ár. „Það lítur allt út fyrir það að það sé 20 til 25 prósent samdráttur í plötusölu, sem er svipaður samdráttur og árið á undan,“ segir Eiður Arnarsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra hljómplötuframleiðenda. Tónlistinn, sem inniheldur þrjátíu söluhæstu plöturnar í viku hverri yfir árið, hefur birt nokkurs konar bráðabirgðalista yfir fimmtíu söluhæstu plöturnar á árinu 2015. Listinn sá er þó ekki tæmandi. Í tilkynningu með listanum segir: „Á þessum lista er einungis um að ræða smásölu í verslunum Hagkaupa, Pennans / Eymundsson, 12 Tóna, Elko, Smekkleysu plötubúð, Kaupfélags Skagfirðinga, Vefverslun Record Records, Heimkaupa, N1 og Tónlist.is. Ekki bárust tölur frá Samkaupum og Lucky Records sem að öllu jöfnu taka þátt í Tónlistanum. Tónlistinn er því ekki tæmandi úttekt á allri smásölu á Íslandi því í hann vantar ýmsa tilfallandi sölu. Til að mynda sölu í öðrum verslunum og á tónleikum listamanna og getur því í mörgum tilfellum munað allnokkru á þessum tölum og endanlegum sölutölum ársins en þær munu liggja fyrir í lok janúar.“ Of Monsters and Men og Baggalútur eiga að öllum líkindum söluhæstu plötur ársins, annars vegar er það platan Beneath the Skin og hins vegar platan Jólaland. „Þessi listi er einungis vísbending um hvernig lokatölurnar geta orðið. Við sjáum þó að söluhæstu titlarnir eru lægri en áður og það má mögulega rekja það til þess að fæstir af söluhæstu listamönnum þjóðarinnar gáfu út plötu á árinu, eins og til dæmis Ásgeir Trausti, Mugison, Páll Óskar, Hjálmar og Retro Stefson svo nokkur nöfn séu nefnd,“ segir Eiður. Þó svo að Of Monsters and Men séu í efstu sæti og Baggalútur í öðru, segir Eiður að það gætu orðið einhver sætaskipti á endanlega listanum. „Sumir titlanna hafa selst vel á tónleikum, veit ég, og það er því alveg klárt að það verða einhver sætaskipti.“ Talið er að sölutölurnar á umræddum lista geti hækkað um 20 til 30 prósent en það á þó ekki við um alla titla. „Það eru nokkrir listamenn þarna sem hafa verið duglegir við að selja plötur á tónleikum, sem gætu bætt við sig,“ segir Eiður.Baggalútur gaf út plötuna Jólaland á síðasta ári og er hún ein af mest seldu plötum síðasta árs.vísir/ernirLíklegar sölutölur Beneath the Skin með Of Monsters and Men og Jólaland með Baggalúti virðist hafa selst í um 4.000 eintökum. Tíminn líður hratt með Magga Eiríks, Fyrir sumarið með ýmsum flytjendum og 25 með Adele hafa selst í um 2.000 til 2.500 eintökum og restin á topp 10 á bilinu 1.300 til 2.000 eintaka.Yfir tíu prósent þeirra eintaka sem seldust af plötunni 25 með Adele voru í formi vínylplatna.mynd/gettyVínyllinn vinsælli „Nýjasta plata Adele, 25, seldist í um tvö þúsund eintökum hér á landi á árinu en af þessum tvö þúsund eintökum voru um 250 vínylplötur. Það sýnir okkur að hópurinn er að breikka og stækka sem kaupir vínyl. Undanfarið hefur indie-rokkið verið sterkt á vínylnum.“ Ásmundur Jónsson, útgáfustjóri Smekkleysu. Þess má til gamans geta að um þriðjungur af þeim titlum sem komu út á geisladisk á síðasta ári komu einnig út á vínyl.
Mest lesið „Það braut ísinn að við hefðum deitað sama gaurinn“ Lífið „Ég var heppinn. En ekki hann“ Lífið „Það er önnur hver gella með í vörunum“ Lífið Fréttatía vikunnar: Körfubolti, laxaastmi og stýrivextir Lífið Simmi Vill og Sunneva Einars létu sig ekki vanta á Jókerinn Lífið Karlmennskuhlaðvarpið heyrir sögunni til Lífið Skrúfaði titrarann í sundur til að forða nágrönnum frá ónæði Lífið Áslaug Arna fór í meðferð til að vinna bug á köngulóafælni Lífið Ólafur Ragnar skellti sér á sæþotu eftir langan dag Lífið Gómsætar haustkökur að hætti Elenoru Lífið Fleiri fréttir Karlmennskuhlaðvarpið heyrir sögunni til „Ég var heppinn. En ekki hann“ „Það er önnur hver gella með í vörunum“ Gómsætar haustkökur að hætti Elenoru „Það braut ísinn að við hefðum deitað sama gaurinn“ Fréttatía vikunnar: Körfubolti, laxaastmi og stýrivextir Áslaug Arna fór í meðferð til að vinna bug á köngulóafælni Ólafur Ragnar skellti sér á sæþotu eftir langan dag Simmi Vill og Sunneva Einars létu sig ekki vanta á Jókerinn Vill að Menendez bræðrum verði veitt frelsi Skrúfaði titrarann í sundur til að forða nágrönnum frá ónæði Eminem verður afi Foreldrar minnka við sig svo börnin geti keypt fyrstu eign „Mikilvægt að umkringja sig fólki sem veitir manni innblástur“ Það er töff að vera sauðfjárbóndi Ingunn Lára gengin út með Celebi Elt á röndum með drónum Rauða dreglinum rúllað út fyrir Svörtu sanda „Þetta er alveg áhugavert en ekki jafn áhugavert og Instagramið mitt“ Tína sveppi í íslenskri náttúru og nýta til fulls „Eini glæpur okkar var sá að verða ástfangin“ Krem í tísku sem séu börnum stórhættuleg Barnabarn Kurt Cobain og Tony Hawk í heiminn Draumur Lilju rættist á tískuvikunni í París Eitt huggulegasta par landsins selur íbúð með fallegum stigagangi Sigmundur birtist fyrirvaralaust Breskur Eurovision-sigurvegari látinn Gerður Huld seldi húsið á 239 milljónir „Stór hluti af samfélaginu okkar“ Haldið í hefðina í Hafnarfirði eftir óhapp Ólafs Sjá meira