Bíó og sjónvarp

Ísland Got Talent: Sölvi Fannar afklæddist ekki þrátt fyrir bón dómara

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
„Þetta er nú með óvenjulegustu atriðunum hér í kvöld og almennt í Ísland Got Talent held ég,“ sagði Jakob Frímann þegar Sölvi Fannar Viðarsson hafði lokið sér af í Ísland Got Talent.

Sölvi Fannar er 44 ára einkaþjálfari og umboðsmaður Hafþórs Júlíus Björnssonar. Hann hefur oft verið kallaður Renaissance Man en hann var Gaua litla innan handar þegar hann létti sig fyrir framan alþjóð.

„Ertu ekki full mikið klæddur? Viltu ekki fara úr skyrtunni? Hvað segið þið, viljið þið sjá hann fara úr skyrtunni?“ spurði Marta María áður en atriðið hófst. Hvatning hennar dugði ekki til.

Atriði Sölva var nokkurs konar gjörningur við frumsamið ljóð sem hann hafði samið sérstaklega fyrir keppnina. Atriði hans má sjá hér fyrir ofan.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.