Bílar

Tesla slær Benz, Audi og BMW við í sölu stórra lúxusbíla vestra

Finnur Thorlacius skrifar
Tesla Model S.
Tesla Model S.
Í flokki stórra lúxusbíla, svo sem Mercedes Benz S-Class, Audi A8 og A7, BMW-7 línunnar og Tesla Model S er lang mest sala í Tesla Model S í Bandaríkjunum. Tesla náði að selja meira af Model S bílnum en allir þýsku lúxusbílasalarnir til samans á þriðja ársfjórðungi þessa árs.

Tesla seldi alls 9.156 Model S bíla á meðan Mercedes Benz seldi 3.138 S-Class bíla, BMW 3.634 7-línu bíla og Audi 1.532 A8 og A7 bíla. Aðeins Tesla Model S og BMW 7-línan seldust meira á þriðja ársfjórðungi þessa árs en í fyrra af þessum bílum. Sala Tesla Model S jókst um 59% á milli ára.

Tesla telst með 34% markaðshlutdeild í þessum flokki bíla í Bandaríkjunum, en BMW 14%. BMW hefur reyndar aukið sölu sína á milli ára um heil 219% í 7-línu bíl sínum, enda er stutt síðan hann kom fram af nýrri kynslóð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×