Enski boltinn

Hazard ekki með í kvöld

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Hazard hefur skorað átta mörk á tímabilinu.
Hazard hefur skorað átta mörk á tímabilinu. vísir/getty
Eden Hazard verður ekki með Chelsea í leiknum gegn Sunderland í ensku úrvalsdeildinni í kvöld.

Hazard fékk högg í leiknum gegn West Brom á sunnudaginn og vegna mikils leikjaálags verður ekki tekin nein áhætta með Belgann.

Búist er við því að Hazard verði klár í slaginn fyrir leikinn gegn Crystal Palace á laugardaginn.

Hazard hefur átt frábært tímabil í ár eftir að hafa verið skugginn af sjálfum sér í fyrra. Hazard hefur skorað átta mörk í 15 deildarleikjum í vetur.

Chelsea hefur unnið níu deildarleiki í röð og getur þann tíunda á Ljósvangi í kvöld. Leikurinn hefst klukkan 20:00.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×