Sigurmyndin mun rata í Fréttablað aðfangadags og sigurvegarinn hlýtur glæsilega Nikon D7200 myndavél frá Heimilistækjum.
Hægt er að kynna sér vélina nánar á vefnum nikon.is. Neðst í fréttinni má síðan sjá kynningarmyndband fyrir vélina.
Úrval bestu myndanna verða birtar ásamt sigurmyndinni í Fréttablaði aðfangadags.
Frá og með deginum í dag gefst þeim sem vilja taka þátt í keppninni kostur á að senda mynd á netfangið jolamyndakeppni@365.is. Hægt er að senda jólamyndir fram á miðvikudag í næstu viku. Mælst er til þess að aðeins sé send ein mynd á hvern ljósmyndara.
Hægt er að fylgjast með framgangi keppninnar á síðunni visir.is/jolamyndakeppni eða undir flipanum Jólamynd ársins, en þar munu allar myndirnar birtast.