Nítján manna hópur hryðjuverkamanna al-Qaeda hafði rænt flugvélunum og notaði þær sem vopn gegn Bandaríkjunum. Talið er að fjórða flugvélin hafi brotlent þegar farþegar hennar réðust gegn hryðjuverkamönnunum sem höfðu tekið hana yfir.
Árásarinnar er nú minnst víða um Bandaríkin og um heiminn.
Þar af létust 343 slökkviliðsmenn og 60 lögregluþjónar í Tvíburaturnunum. Flestir þeirra voru á hlaupum upp stiga bygginganna til að koma slösuðum og þeim sem voru fastir til bjargar, en þá hrundu byggingarnar.

Árásirnar á Tvíburaturnana og hernaðaraðgerðir Bandaríkjanna í kjölfarið hafa haft miklar afleiðingar fyrir heiminn. Frá ellefta september hafa 88 árásir verið reyndar í Bandaríkjunum en komið var í veg fyrir allar þeirra nema sex.
Slökkviliðsstjóri New York á þessum tíma, Thoma Von Essen, segist hugsa um þennan dag á hverjum einasta degi. Hann eigi enn erfitt með að átta sig á því sem hafi gerst.
Hans sterkasta minning er af séra Mychal Judge, sem var prestur slökkviliðsins, þar sem hann stóð í anddyri norðurturnsins og bað fyrir slökkviliðsmönnunum sem þá voru á hlaupum upp stiga byggingarinnar.
„Við segjum að hann hafi verið fyrsti slökkviliðsmaðurinn sem dó. Við munum alltaf segja það, að hann hafi verið fyrstur til himnaríkis og tekið þar á móti öllum hetjunum sem féllu þann dag,“ segir Von Essen í samtali við Fox.

Hann segir einnig frá því þegar hann ræddi við John Vigiano, fyrrverandi slökkviliðsmann, um kvöldið eftir árásirnar. Báðir synir Vigiano voru þá týndir. Annar þeirra var slökkviliðsmaður og hinn rannsóknarfulltrúi hjá lögreglunni, en seinna kom í ljós að báðir höfðu látið lífið í turnunum.

Rebecca Lazinger hafði unnið hjá Morgan Stanley í nákvæmlega eitt ár þegar árásin var gerð. Hún var sein á ferð og var í anddyri annars turnsins þegar árásin byrjaði. Hún segir höggið þegar fyrri flugvélin lenti á turnunum vera það háværasta sem hún hafi nokkurn tímann heyrt.
„Allt varð hljótt, svo fylgdi ringulreið og ótti.“
Lazinger man eftir því að maður sem stóð við hliðina á henni öskraði skömmu áður en brak úr byggingunni féll á hann.
„Ég hélt enn á kaffibollanum mínum. Svo hljóp ég í hina áttina. Ég var ekki að hugsa, ég bara hljóp.“
Hún féll í gólfið en var dregin upp og dregin út um hurðina á sama tíma og seinni flugvélin lenti á húsinu.
